Maístjarna

Ó hve létt er þitt skóhljóð
ó hve leingi ég beið þín,
það er vorhret á glugga,
napur vindur sem hvín,
en ég veit eina stjörnu,
eina stjörnu sem skín,
og nú loks ertu komin,
þú ert komin til mín.

Það eru erfiðir tímar,
það er atvinnuþref,
ég hef ekkert að bjóða,
ekki ögn sem ég gef,
nema von mína og líf mitt
hvort ég vaki eða sef,
þetta eitt sem þú gafst mér
það er alt sem ég hef.

En í kvöld lýkur vetri
sérhvers vinnandi manns,
og á morgun skín maísól,
það er maísólin hans,
það er maísólin okkar,
okkar einíngarbands,
fyrir þér ber ég fána
þessa framtíðarlands.

Texti: Halldór K. Laxness



Gleðilegt sumar

Sunnan yfir sæinn breiða
sumarylinn vindar leiða
- draumalandið himinheiða
hlær og opnar skautið sitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!

A a ...
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!

Gakk þú út í græna lundinn,
gáðu fram á bláu sundin
- mundu að það er stutt hver stundin
stopult jarðneskt yndið þitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!

A a ...
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!

Allt hið liðna er ljúft að geyma,
láta sig í vöku dreyma.
Sólskinsdögum síst má gleyma
- segðu engum manni hitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!

A a ...
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!

Jóhannes úr Kötlum

menntun er máttur

Það er grundvallarmannréttindi hvers og eins að njóta jafnra tækifæra til menntunar, óháð efnahag og búsetu. Nú á tímum óvissu í efnahagsmálum þjóðarinnar skiptir miklu máli að styrkja stoðir menntunar í landinu. Menntun í heimabyggð er eitt að grundvallar atriðum þegar fólk velur sér búsetu, menntun á öllum skólastigum og aðgang að símenntun í starfi. Aðgangur að háskóla eða háskólasetri í hverjum landshluta skiptir þar miklu máli. Háskólamenntun gegnir lykilhlutverki í eflingu nýsköpunar og þróun atvinnulífs og öll menntun er driffjöður framþróunar og þannig er lagður grunnur að framtíðarhagvexti þjóðarinnar. Auk þess sem heilbrigt samfélag dafnar og þroskast í nánd við allar menntastofnanir og það eykur samkeppnishæfni svæða sem hafa yfir að ráða öflugum menntastofnunum.
Því skiptir það miklu máli að menntastofnunum sé tryggt áframhaldandi fjármagn til að starfa.
Á undanförnum árum höfum við fylgst með uppbyggingu háskóla og háskólasetra í kjördæminu og fengið að fylgjast með hversu jákvæð áhrif slíkt hefur á samfélagið í kring. Framsóknarflokkurinn hefur alltaf lagt áherslu á byggðamál og bent á þá sjálfsögðu staðreynd að það sé landi og lýð til heilla að öllum séu boðin jöfn búsetuskilyrði. Þar spila mennta og velferðarmál stóru lykilhlutverki. Framsóknarflokkurinn vill leggja aukna áherslu á háskólakennslu á landsbyggðinni með áherlsu á að sérstöðu hérðanna verði nýtt í sérgreiningu.

Halla Signý Kristjánsdóttir

Höfundur er í 5. sæti á lista Framsóknarflokksins í NV- kjördæmi


Björgum Heimilinum

Í gær var samþykkt lög um greiðsluaðlögun, þetta er tillaga núverandi ríkisstjórnar til að bjarga heimilunum í landinu, undan klóm kreppu og verðbólgurisans. Já þetta kemur til að með að koma 120 heimilum til hjálpar. Vá það er bara 1/3 af heimilum hérna í Bolungarvík. Já það er bara heilmikið.  Ég hugsa að það svona nokkurn vegin svo stór hluti heimila í Bolungarvík sem þurfi hjálp... gott hjá þeim. EN þá eru öll hin heimilin í landinu eftir sem marra enn í hálfu kafi en fá ekki náð fyrir augum yfirlýstar félagshyggjustjórnar.GetLost

Þetta er bara grín, ef þú átt í greiðsluerfileikum þá leitar þú til ráðgjafastöðvar heimilanna, (fyrsta báknið) ef það fær einhverja náð þar er það sent til héraðsdómara,, já já allir vita hvað það tekur langan tíma, einhverja mánuði. Þaðan fer það aftur til ráðgjafa og fylgir því ákveðin vitnisburður svo aftur til Héraðsdóms. Líklega verður þetta heimili orðið hálf bogið af hungri og eymd eftir alla þessa bið. þetta er í besta lagi grín í versta falli svívirðing.

Hvað er rauðgrænabyltingin  (einhenta ríkisstjórn VG og S) tilbúin að borga fyrir þessa meðferð og hver greiðir hana? Mér er spurn. Eitthvað kostar það, örugglega hægt að bjarga nokkrum heimilum í millitíðinni og fyrir það fé sem þarna fellur í vasa sérfræðinga sem eiga eftir að maka krókinn vel á þessari vitleysu.

En lög um að aflétta ábyrgðarmönnum af lánum fær mitt atkvæði.


Huppa

kyr Í nýjasta bændablaðinu er sagt frá því að í háskólanum í Newcastle í Englandi séu þeir búnir að komast að því að kýr mjólki betur ef þær beri nöfn, eða s.s. heiti eitthvað. Huppa mjólki 258 litrum meira heldur en sú nr. 567 í ónefndum kúahóp.

Ályktun sem þeir draga af þessu er að kýr sem bera nafn þær fá meiri umhyggju og frekri meðferð heldur en NN kýrin og þess vegna afslappaðri.  Já þetta hélt ég að væru ekki ný sannindi. Á þetta ekki við um okkur tvífætlingana? ef við fáum  meiri umhyggju og meiri jákvæðari athygli þá afköstum við meira, sama hvar okkur ber niður. Á heimili, vinnunni, í skólanum og í samfélaginu.

Við skulum muna það, þrátt fyrir vetrarríki úti, hærri verðbólgu en eðlilegt er að við erum öll einstök og skilum okkar inn í samfélagið allt.


Það lá að

snjór Mig dreymdi böns af hveitikökum í nótt, mér var boðið í hús hér í Víkinni og ég leit inn í skápa og allir skápar voru fullir af hveitikökum. Ég var að halda að þetta boðaði snjó,,,, hélt að væri komið nóg af því en viti menn um kvöldmataleytið var kominn glórulaus bylur. En konan sem bauð mér í hús í draumnum hét Björg svo þetta él birtir upp um síðir eins og öll hin.

Sjálfstæðismenn

Kassinn undir bréfalúgunni hjá mér er fullur hvern dag er ég kem heim úr vinnu. Björt og brosandi andlit á glanspappír blasa við mér, gefandi fögur en fá loforð um betri daga. Þetta er prófkjörslagur sjálfstæðismanna í NV kjördæmi.

En sú peningasóun og þetta er eitthvað svo mikið 2007. Ef maður opnar bb.is þá blasa við manni á alla kanta banner-auglýsingar svo aðrar fréttir skreppa saman eins og yfirtaka ríkisins á okkar ástkæru sparisjóðum. Svo eru greinaskrif stuðningsmanna, tvær til að tryggja fimmta sætið !!!!!!!

Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem auglýsir í blöðunum fyrir prófkjör, æææ hvað þeir eru taktlausir eitthvað, svo lýsandi fyrir þá. Svo eru þeir líka farnir að klóra augun úr hver öðrum.

Ég vildi að frambjóðendur í NV hefðu notað þessa fjármuni í eitthvað vitlegra. Ég giska á að samanlagður kostnaður þeirra sé upp á nokkrar milljónir og þetta er bara prófkjörið, svo er kosningabaráttan eftir.

Sjálfstæðismenn vakna,,,, halló......


niðurstaða

Þá liggur fyrir niðurstaða póstkosningar hjá Framsóknarmönnum í NV kjördæmi. Ég stefndi í 1 eða annað sætið. Niðurstaðan er fimmta sætið. Ég er samt mjög sátt. Ég fór algjör lega blönk í þessa baráttu. Í þeirri merkingu að ég er í fyrsta sinn að bjóða mig fram í landsmálum í flokknum þrátt fyrir að ég hafi alltaf starfað mismikið þó á heimavelli. Ég lagði ekki  meira fé í kosningabaráttuna en bensín, eign orku og keypti nokkrar gistinætur hér og þar. Þess vegna finnst mér allt vera upp á við í þessu og mjög sátt við mitt. Takk fyrir kæru kjósendur sem krossuðu við mig 937 sinnum.

Auk þess vil ég sérstaklega þakka eiginmanni mínum honum Sigga Gumma sem hefur stutt mig til tunglsins í þessu auk stórfjölskyldum báðum  megin og vinum. Björgmundi Erni þakka ég sérstaklega mikla hjálp og stuðning.

Listinn sjálfur er bara flottur. Gunnar Bragi leiðir listann og er hann vel að því kominn. Ótvíræður leiðtogi og snjall stjórnmálamaður. Guðmundur Steingrímsson, er flottur í baráttusætinu og er flottur inn á þing fyrir okkar kjördæmi.

Ég lít svo á að Sindri sé varaþingsmannsefni og er flottur fulltrúi bænda meðal okkar.

Það verður þó að segja að ef við lítum á listann út frá kynjaskiptingu stöndum við frekar höllum fæti, það þurfti þó ekki að beita handstýringu um að koma kynjakvótanum á, en ekki gat það staðið tæpar. Elín Líndal búin að vinna óslitið í flokknum og gengt fjöldamörgum trúnaðarstörf fyrir hann hlýtur fjórða sætið. Í 75% tilfella var krossað við hana í 1-4 sætið, því öllum finnst rétt að listinn endurspegli rétta samfélagsmynd en þó svona bara til að vera með en ekki til áhrifa. 

Það er þó stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum að um síðustu helgi skyldu fimm konur vera lenda í röð í kraganum.

 Ég hlakka til að vinna með þessu frábæra fólki sem ég er búin að vinna með síðustu vikur, líka þeim sem ekki náðu framalega, því allt var þetta  mjög frambærilegt og stórskemmtilegt fólk. Við öll leiðum listinn til sigurs 25. apríl nk.


Moka moka

halla_snjor Moka, moka, moka meiri snjó,, Þetta beið mín þegar ég kom heim, gott að eiga hraustan dreng sem getur hjálpað mér. Guðný Hildur nágrannakona mín smellti þessari af okkur. Var búin að vera á framboðsferðalagi um Vesturland um helgina og komst ekki heim á mánudagskvöldið en við hjónin vorum svo heppin, að stoppa í Reykjanesi og gista þar.  Þar sváfum við bara í norðanrokin og létum staðarhaldara stjana við okkur á allan máta. Keyrðum á mánudagsnóttina í tunglsljósi og stjörnubjörtu veðri, en Éljabakki hafði legið hérna yfir Bolungarvík og Ísafirði svo það var allt orðið ófært hérna norðan til eins og sést á þessari mynd.

Ég var s.s. á framboðsfundarherferð um helgina. Byrjaði hér á laugardaginn á Ísafirði, svo var fundur á sunnudagsmorgun á Akranesi og kl 16 í Borgarnesi. Þá var ferðinni haldið á Snæfellsnesið þar sem við tókum hús á Maggý og Dúna. Gott að hitta þau og spjalla aðeins. Maggý er að gera skemmtilega hluti á Nesinu sem ég er að hugsa um að kynna mér aðeins betur, þ.e. Átthagastofa, þetta væri tilvalið að koma hérna upp í Bolungarvík. Vantar bara frískt fólk að huga að þessu.

Á mánudaginn fór ég sem sannur frambjóðendi heim á nokkra bæi og hitti hressa bændur. Þá var svo fundur á Stykkishólmi um kvöldið og svo var haldið heim um nóttina sem áður sagði.

En heim er ég komin og fer ekki aftur fyrr en á föstudaginn...... 


Það eru ekki alltaf jólin

Lítil hnáta stóð fyrir framan mig með bolluvöndinn sinn og sagði: „Amma, nú eru jólin búin, hvað þá?“ Jú, bolludagur var fram undan, sprengidagur og öskudagur með möskum og grímuballi. En spurning hennar minnti mig á Ástu Sóllilju í Sjálfstæðu fólki þegar hún sat við að vinna ullina á löngum og dimmum vetrarkvöldum eftir jólin. Henni fannst sem allt væri kalt og dautt eftir nýliðna jólahátíði og svo óralangt í næstu tilbreytingu. Hún reyndi af mætti að kalla fram bjartari tíma og tilhlökkun í fleiri hátíðisdaga: „Núna þegar þessar hátíðir eru liðnar, hvað er það þá sem tekur við amma?“ Spyr hún ömmu sína. „Ætli það taki sosum mikið við, held það taki ekki mikið við. Sem betur fer.“ Svarar sú gamla, nærri hlakkandi.

Þjóðinni er eins farið og Ástu Sóllilju, við eygjum illa betri tíma og þráspyrjum yfirvöld um framhaldið. Okkur er illa bumbult eftir þenslu liðinna hátíðisdaga þegar landinn lifði jólin í efnahagslegu tilliti og var kannski helst til ginnkeyptur eins og hann héldi að þau vöruðu að eilífu. Jólasveinar í líki útrásarvíkinga hröktu raunsæi og skynsemi út í horn meðan þeir sleiktu úr öskum og skyrdöllum þjóðarinnar.  En er það rétt hjá ömmu Ástu Sóllilju að það taki ekkert við? Sérfræðingar eru ekki sammála um framhaldið, ekki einu sinni um skuldastöðu þjóðarinnar. En endurreisnarstarf er þegar hafið og mikið verk er fram undan. Það sem skipir mestu máli er að við missum ekki sjónar á framhaldinu, að við eygjum betri tíma. Breytingum fylgja tækifæri. Mikilvægt er að koma auga á þau. Það verður að hafa þor til að skoða skipulagið niður í rót, jafnvel á sérstöku stjórnlagaþingi þar sem stjórnskipulag landsins verður skoðað. Framkvæmdavaldið þarfnast endurskoðunar.Miklu máli skiptir að samfélagið verði byggt upp innanfrá í formi menntunar í heimabyggð á öllum skólastigum. Háskólasetur verði efld og sérstaða svæða nýtt. Menntun er driffjöður framþróunar og skiptir miklu máli. Einnig er mikilvægt að skapa aðstæður fyrir atvinnuskapandi hugmyndir og þannig verði frumkvöðlastarfi fundinn frjór farvegur. Þetta er hægt að gera í samvinnu við háskólaumhverfið á hverjum stað.Framsóknarflokkurinn hefur hlýtt kalli þjóðarinnar um endurskoðun og endurnýjun í röðum flokksins þótt ekki sé um að ræða neina umbyltingu því miklu máli skiptir að reynsla og þau manngildi sem fyrir eru fái að njóta sín. Flokkurinn hefur  því  afturfærst nær sínum grunngildum með fólk í fyrirrúmi. Það sem fram undan er þarf ekki að vera algjörlega nýuppfundið, hins vegar þarf að leita jafnvægis og virkja lýðræðið. Okkur er því ekkert að vanbúnaði, við getum hafið endurreisnarstarf með bjartsýni og von að leiðarljósi.

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband